sunnudagur, október 21, 2007

Nenniggissu...



Ég er að spá í að hvíla bara þetta blogg í óákveðinn tíma og kannski bara til frambúðar. Sýnist enginn vera að kíkja hingað inn (miðað við kommentafjöldann hihihihi) svo þetta er orðið ósköp pointless.

Sayonara!!

sunnudagur, október 14, 2007

You can´t stop the beat!

Það hefur svo sannarlega runnið dansæði á skvettuna ykkar en þetta byrjaði auðvitað allt hér fyrir austan fjall um síðustu helgi þar sem tekin voru spor sem kennd eru við suðrænar slóðir, kúreka og poppprinsessur. Árshátíðin var stórskemmtileg og fyrir utan dansinn var mikið hlegið en Þorsteinn Guðmundsson var óborganlegur veislustjóri. Skemmtiatriðin voru sprenghlægileg líka og maturinn hinn ágætasti bara! Ég með mínar sérþarfir fékk voða fínan kúrbítsrétt og get sko ekki kvartað yfir honum.

Dansinn dunaði svo áfram í gærkvöldi þegar við mæðgur fórum í bíó og sáum Hairspray! Ég vaknaði með harðsperrur í brosvöðvunum því þetta er án efa mesta Feel-Good mynd ársins. John Travolta fór á kostum sem mamman og ég get ekki annað en hlegið þegar ég sé Christopher Walken eftir að hafa séð hann dansa til að gleyma í Fatboy Slim myndbandinu.


Þá er allaveganna komin ein dvd ósk á jólagjafalistann minn! Ef ég hefði horft á þessa mynd á spólu fyrir 10 árum síðan þá hefði ég sko spólað strax tilbaka og horft á hana AFTUR!
Til að toppa allt saman fór ég á netið um leið og ég kom heim og fór að leita uppi einhverja skemmtilega danstíma sem ég get dillað mér í eftir áramótin einhvern tímann - þegar ég er orðin nógu spræk til að sprikla. Leist nú best á stundaskránna hjá Laugum en kannski nær Hreyfing að halda mér með nýja húsnæðinu, þó að ég hafi frétt að verðskráin hjá þeim fái Laugar til að roðna!
Tja - kannski maður skelli bara Hairspray í græjurnar og geri þetta bara sjálfur!




laugardagur, október 06, 2007

Djamm og boltinn!

Föstudagspistillinn mættur nokkrum stundum of seinn en fyrst ekki er búið að hringja inn hádegið þá tel ég mig sleppa með þennan slóðaskap! Reyndar er ég búin að klikka á nokkrum pistlum uppá síðkastið ... en hver man þessa hluti alla saman ... amk ekki ég þessa dagana sem geng um í móðu og rígheld í svörtu bókina mína sem inniheldur allt líf mitt. Ég týndi henni í einn dag fyrir skömmu og það mun ekki gerast aftur!! Það var hræðilegt - ég vissi bara ekkert hvar ég átti að vera eða hvað ég átti að gera!

Það sem hefur nú helst drifið á dagana er afmælisveisla Frakkans síðustu helgi en ég bakaði my ass off og bauð uppá þvílíkar kræsingar. Elsti bróðir minn var nú alveg ein augu og bara steinhissa yfir flottheitunum - sem ég skil auðvitað ekkert í þar sem ég er alltaf með stórkostlega fallegt borðhald fyrir mína gesti! Eina vesenið nú er að ég er komin í bökunarstuð og komin með fullt af uppskriftum sem mig langar að prófa EN á ekki hrærivélina góðu sem hefur staðið með mér í gegnum þetta allt saman og haldið þið ekki að það sé búið að biðja mig um að skila henni HNUSSSSSS ... ég held þetta sé bara öfundsýki sko! Þannig að annaðhvort þarf ég að drífa mig að gifta mig svo ég fái nú örugglega hrærivél á heimilið eða kaupa eitthvað ógisslega ósnobbað substitue sem er kannski bara meira ég hehehehehehehehe!

Annars verður gaman þessa helgina, bíð spennt eftir því að klukkan slái 11:45 því þá ætlum að horfa á fyrsta leikinn í enska boltanum HEIMA hjá okkur. En við ákváðum loksins að láta verða af því að fá okkur enska í áskrift þar sem það er orðið aðeins erfiðara að flytja mig milli staða! Já og svo erum við náttla líka bara svo biluð!

En leiðin liggur svo beint til Hnakkville á árshátíð Umferðarstofu sem ætti nú að verða skemmtilegt enda stórskrýtið og skemmtilegt fólk sem vinnur þar! Þorsteinn Guðmundsson ætlar að halda fjörinu uppi með bröndurum og skipulagsleysi og svo fáum við góðan mat, skemmtiatriði og fullt af brennivíni múahahhahahahaha
Svekkjandi að Frakkann þarf að bruna heim beint eftir matinn því hann á morgunflug í fyrramálið en ég býð þá bara einhverjum öðrum uppá svítu með mér (til að halda mér félagsskap auðvitað ... oj hvernig hugsið þið eiginlega)!! En ég á örugglega eftir að gleyma þessum plönum eftir 5 mínútur og vera sofnuð fyrir miðnætti eins og venjulega!!

Góða helgi hnakkar og hnekkjur og allir hinir!

föstudagur, september 28, 2007

Sjittörinn tittörinn!!! Þetta er ótrúlegt!!!

föstudagur, september 21, 2007

Þá er maður loks farin að jafna sig eftir ferðalagið til Kaupmannahafnar síðustu helgi. Við eyddum föstudeginum og laugardeginum hjá Madame Há og Emm í góðu yfirlæti og vorum við freeeeekar glöð með heimsóknina. Reyndar var ég líka doldið fegin þegar henni lauk því hún saug úr mér ansi mikla orku. Við tókum svo auðvitað fræga brunhcinn á Syrup sem klikkar aldrei og fengum okkur þónokkra kaffibollana á Cafe Norden. Við áttum svo notalega kvöldstund með Þurí og fjölskyldu í nýju íbúðinni og fengum 3ja rétta dásemdarmáltíð hjá húsfrúnni. Þar sem allar búðir voru lokaðar á sunnudeginum (hjúkket..) eyddum við deginum í blíðskaparveðri í tívolíinu. Við fórum meira að segja í parísarhjól og rússíbana ... fyrir smábörn ... en mér fannst það nú alveg nógu spennandi og fékk þvílík fiðrildi í mallann í rússíbananum og gaf frá mér afar skemmtileg óhljóð ... eða það fannst Frakkanum allaveganna sem grenjaði úr hlátri yfir látunum í mér. Flugferðin heim var nú samt ein sú alversta í sögunni en minns fékk svona hrikalegt mígreniskast og lá ég bara í fanginu á stuðpúðanum mínum með ælupoka í hönd (nei ég ældi sem betur fer ekki...).
Síðan ég kom heim hef ég nú bara hreinlega verið að jafna mig en ég var ansi þreytt eftir herlegheitin. Þetta hefði nú örugglega verið verra ef við hefðum ekki verið í svona fínum rúmum en við gistum á gistiheimilinu LaVilla hjá henni Vilborgu og var það bara mjög fínt. Verðin hjá henni eru auðvitað bara snilld en við borguðum 400 danskar fyrir nóttina en það er á sumarverði - svo kostar nóttin 300 kall nóttin yfir vetrartímann.
Aðrar fréttir eru auðvitað þær að það eru komin fullt af krílum í heiminn og ég er alveg að missa mig yfir þessum dúllum - ekkert smá gaman að þessu. Þar fyrir utan er stórfréttin sú að CARIB er kominn til landsins. Þetta er sjúklega góður bjór, svona svipaður og Corona nema ferskari og auðvitað miklu betri hehehehehehe
Hann kemur alla leið frá Trinidad og Tobago og er 5,2%!! Strákarnir mínir eru meira að segja með svakalegt tilboð þessa dagana - þú kaupir 3 kassa og færð 4ja frían! En þetta er mjög tímabundið tilboð svo ef þú ert að fara að halda partý eða langar bara í nokkra kassa af snilld þá hefurðu bara samband við mig! Annars fæst hann bara í Kringlunni og Heiðrúnu eins og er því hann er í reynslusölu en hlutirnir eru greinilega að ganga mjög vel því hann fýkur út og það er ekkert auðvelt þegar maður kemur með nýjan bjór á markaðinn. Fólk vill gjarnan halda sig við SÍNA tegund hi hi hi hi hi Þannig að Double Dare helgarinnar er að næla sér í Carib og láta mig svo vita hvernig þér fannst !!
En það er bara skemmtilegheit framundan. Frakkinn er farinn í útlandareisu fram á miðvikudag svo ég pakkaði helginni í allskonar hittinga og matarboð með frábæru fólki og lítur hún ekkert smá vel út!
Túddilúúúú ...

fimmtudagur, september 13, 2007

Næstum föstudagspistill!

Já það er löngu kominn tími á föstudagspistil hjá mér og í tilefni þess skrifa ég nú nokkrar línur á fimmtudegi þar sem ég verð í háloftunum á morgun og finnst ólíklegt að ég fari að blogga svona útí bláinn þar sem ég verð umkringd fallegum búðum og pylsuvögnum. Síðan verð ég örugglega frekar upptekin af því að hoppa í polla því spáin fyrir Kóngsins Kaupmannahöfn er ansi blaut fyrir helgina! Jú við Frakkinn ætlum að skella okkur í 2 nætur og sjoppa doldið duglega ásamt hinu og þessum hittingum og skemmtilegheitum. Ég var auðvitað á leiðinni til London um daginn en fékk svo hrikalega í bakið að mér var eiginlega bara bannað að ferðast svo nú erum við að reyna að bæta upp fyrir það - þó er maður súr að missa af fólkinu sínu og London - enda farin að sakna hennar mikið. En ég held að það yrði einum of mikið álag á mig og stress og þyrfti allaveganna vikuferð til að ná að hitta alla og gera allt sem ég hefði viljað gera. Finnst líklegt að taka bara góðan rúnt næsta sumar ef allt gengur vel!
Ég er sömsé orðin mikið betri í bakinu, var send í massíva sjúkraþjálfun og þurfti að minnka vinnuna í 60% og er bara orðin allt önnur ... vona að ég eyðileggji nú ekki árangurinn á því að þramma of mikið um Köben - fæ Þurí til að hella í mig kaffibollum á klukkutíma fresti svo ég hvíli mig nú örugglega hehehehehehe
Mér var bent á stað sem heitir Reef N´ Beef en þar á víst að vera æðislegt að borða svo ég er að spá í að panta bara borð fyrir annað kvöld og bjóða Frakkanum uppá eins og einn krókódílarétt eða svo! Hann ætti nú að kunna að meta það grunar mig :o)
Æ þetta verður bara yndislegt - get ekki beðið!

laugardagur, ágúst 18, 2007

Jafntefli !!!



Which Harry Potter Character Are You?

You are part Fred and George. You're a joker at heart, but when push comes to shove, you know what's important.
You are part Hagrid. You're an outcast with a heart of gold. Despite your own problems, you always find time to help those in need.
Find Your Character @ BrainFall.com

föstudagur, ágúst 10, 2007

Það er bara strax kominn föstudagur og kvarta ég nú ekki sáran yfir því. Vinnuvikan var þrælerfið og sannast það kannski helst á því að ég sofnaði undir stýri í gær þegar ég var á leiðinni í jógatíma í Kópavoginn. Mér brá heldur illa við þessu og í staðinn fyrir að fara í tímann keyrði ég beint í foreldrahús sem er þar rétt hjá og steinrotaðist í 2-3 klukkutíma og þurfti að vekja mig úr rotinu. Ég hef nú haldið því fram að ég sé rosa sensibell pía sem kann sko alveg að hlusta á líkamann og að ég sé nú að fara vel með mig - en ég verð að játa vanmátt minn á því sviði og grunar mig að óþrjótandi þrjóska hafi eitthvað um málið að segja. En ég fór snemma að sofa og vaknaði svona fín og hress í dag - sem betur fer! Rosalega skrýtið - það var bara eins og tankurinn hafi bara TÆMST þarna í gær!

Verslunarmannahelgin var yndisleg og fórum við í þrusustuðpartý á föstudagskvöldinu hjá Doktornum! Svo eyddum við helginni uppí bústað og var ég límd við Potter mestallan tímann en les svo hægt þegar mér finnst bækur skemmtilegar að það er met !!! Eigandinn strax farin að tékka á því hvernig gangi hjá mér því það er víst komin biðröð eftir henni hehehehehehehe

En þessi helgi verður nú eitthvað mögnuð - ég á flug í bítið til Ísafjarðar með nokkrum fögrum fljóðum en leið okkar liggur til Súðavíkur í brúðkaupið hennar Birgittu okkar og Örvars. Þetta verður án efa stórglæsilegt og einlægt eins og hún er sjálf og ég hlakka þvílíkt til! Komin með fína gistingu skilst mér Í RÚMI - það skiptir auðvitað öllu ;o) og svo flýg ég tilbaka á sunnudaginn.

Annars var ég að koma úr yndislegum hitting með Heru og Þurí og Hilmari Andra krúttbossa. Við fengum svona líka þessa dýrindis franska súkkulaðiköku á Café París - mæli með henni og Latte í glasi ... mmmm ... to die for.

Annars þarf ég að koma mér úr sporunum - á von á fólki í grill en það eru Steini og Selma sem ætla að heiðra okkur með nærveru sinni - enda bráðnauðsynlegt að FUNDA um tilvonandi Lundúnaferð okkar! Erum að skoða leiki og sýnist spennan liggja á Fulham-Tottenham leik þessa helgina. Skiptir náttla engu máli hverjir eru að spila - það er alltaf geðbilun að fara á leik í enska. Svo er spurning hvort við förum á söngleik líka en það verður auðvitað eitthvað um leikhúsferðir. Valið stendur á milli Lord of the Rings - The Musical eða Spamalot ... já einmitt! En ég mun auðvitað eyða megninu af tímanum að hitta "familíuna" mína og ég er orðin svo spennt að ég get varla beðið!!

Annars er ég bara að fíla Facebook í tætlur - Myspace er dead - tékkið á því!

Góða helgi allir saman.

föstudagur, ágúst 03, 2007

Þjóðhátíðarfestivalsföstudagur !!!

Þá er kominn enn einn föstudagurinn og hefur hann nú bara verið hinn ágætasti hingað til og er mér nú bara nokk sama um smá dropa enda búin að vera inni í hlýjunni allan daginn.

Það hefur nú ýmislegt drifið á daga mína og ber þar kannski hæst gæsunin hennar Birgittu Kópavogspíu en það var algjör snilldardagur. Ég reyndar tók ekki þátt í kvöldstemmningunni því ég var búin að plana sumarbústaðaferð þennan dag en hef heyrt krassandi sögur af nöktum grillurum og svæsnum drykkjuleikjum - enda er aldrei neitt annað en Full-Blast-Djamm-og-Stuð þegar kemur að þessum hóp.

Ég hef reyndar hlegið að einu atviki alla vikuna en það var þegar Frakkinn var að hjálpa tengdamóður sinni að leggja á borðið uppí sumarbústað og fær í hendurnar hrásalat í plastdollu og spyr furðu lostinn hvort hún ætli ekki að setja þetta í skál??? Henni fannst það nú algjör óþarfi og þá varð hann nú ennþá meira hissa og sagði "Já, þetta myndi dóttir þín aldrei taka í mál ... hún setur allt í skálar". Og þá kom það uppúr krafsinu að svo sannarlega geri ég þetta algjörlega ómeðvitað (eða hvað..) en mér finnst fátt klénna og ósmekklegra en að borða hluti uppúr dósum og dollum og pokum af ýmsu tagi og set allt í skálar!! Sjitt hvað maður er ANAL! En þetta finnst mér sjúklega fyndið og bara varð að deila þessu með ykkur.

Er síðan byrjuð í sundi og jóga og er ógisslega ánægð með það enda þekki ég nú bara helminginn af hópnum sem fer í þessa tíma þannig að það er nóg um spjall og slúður eftir tímana! Síðan er þetta í Mecca Spa og það er nú ekkert slor þó það sé komið til ára sinna og mér finnst alveg yndislegt þar innandyra.

En hvað tekur við um helgina? Jú það verður þrusupartý A La Togga læknir í tilefni af afmæli hennar og því að hún er komin með FULLT læknaleyfi - HÚRRA fyrir henni! Hún er náttla elsta vinkona mín og höfum við þekkst í meira en aldarfjórðung ... pælið í því! Og mér þykir alltaf jafnvænt um þessa skonsu mína enda næst því að vera systir mín hreinlega he he he he he
En svo er það enn og aftur sumarbústaðafílingurinn og förum við þangað á morgun í góða veðrið (I hope!).

Hafið það súper um helgina og vonandi drukknið þið ekki í drullu þið sem eruð að fara til Eyja ... gaaaaaaaaaaaaaa ég segi bara svona því ég elska Þjóðhátíð og er Djellöss heheheehe

föstudagur, júlí 27, 2007

Funky Friday!

Jæja þá er kominn tími á eins og einn föstudagspistil. Ég jinxaði auðvitað sósíalnum þarna um daginn því ég var svo útbrunnin eftir þann daginn að ég missti bæði af fiskisúpunni góðu, krílahittingnum og grillferðinni !!
En hann er nú fljótur að rífa sig upp og plönin byrjuð að hrannast aftur upp. Fyndið hvað allir verða ofvirkir á sumrin - eins og við séum að missa af einhverju stórkostlegu!

Það verður stuðhittingur Kópavogspíanna í kvöld og ég er rosalega spennt fyrir því - allskonar leynimakk í gangi ... kemur allt í ljós í næsta pistli!
Ætla svo að bruna á Anfield þar sem Frakkinn bíður mín (... og ma&pa ...)og potturinn verður orðinn heitur og tilbúinn fyrir skvettuna. Svo ætlum við að skella okkur í golf á morgun en ég hef ekki snert settið mitt orðið í ansi langan tíma þannig að það verður forvitnilegt að sjá hversu fljót ég verð að henda kylfunum í jörðina og bölva þessari íþrótt svo stórkostlega að hvaða sjóari sem er myndi klökkna af stolti.

Svo er verið að spögglera í að taka tjútt á laugardaginn með nokkrum sætum MR stelpum en sú pæling er ekki komin langt - ætli við endum ekki bara í kjaftablaðri fram á nótt og gleymum okkur þannig! Það er líka langskemmtilegast! Alveg komin yfir þennan miðbæ og langar EKKERT að fara þangað eitthvað að djöflast innan um svitalykt og annan óþef - sem maður hefur frétt af - stígandi upp af dansgólfum bæjarins.

Annars er það helst í fréttum að sett var dagsetning í gær fyrir langþráða Londonferð en við förum síðustu helgina í ágúst í nokkra daga. Ég er alveg orðin skrælnuð af söknuði - enda erfitt þegar maður á svona marga ástvini langt í burtu! Ég er nú orðin ansi sjóuð í ferðalögum en VÁ hvað ég er hrikalega spennt fyrir þessari ferð - ég bara iða í skinninu að komast út og fara í Greenwich Park með genginu með gítar og gleði og jamma saman ... vona bara að það verði ekki flóð ákkúrat þessa dagana og að sólin ákveði að halda sig yfir borginni - bara fyrir mig!

Annars fékk ég senda þessa frétt frá Frakkanum áðan og ég missti næstum andann af hlátri enda alveg einstaklega líkt hans vinahóp að taka upp á einhverju svona þó þeir eigi nú reyndar ekki heiðurinn af þessari uppákomu! Hvað er málið með stráka og berrössun when drunk !!

Hafið það gott um helgina!